Lífland er nú þriðja árið í röð á lista Creditinfo yfir þau fyrirtæki sem þykja skara framúr hvað rekstur varðar.
Einungis 2,2% íslenskra fyrirtækja komast inn á listann en til þess að koma til greina þurfa fyrirtæki að uppfylla eftirfarandi skilyrði.
- Er í lánshæfisflokki 1-3
- Rekstrarhagnaður (EBIT) hefur verið jákvæður þrjú síðustu rekstrarár
- Ársniðurstaða hefur verið jákvæð þrjú síðustu rekstrarár
- Eiginfjárhlutfall 20% eða meira þrjú síðustu rekstrarár
- Eignir a.m.k. 90 m.kr. á síðasta rekstrarári og 80 m.kr. tvö rekstrarár þar á undan
- Framkvæmdastjóri er skráður í hlutafélagaskrá
- Fyrirtækið er virkt samkvæmt. skilgreiningu Creditinfo
- Ársreikningi skilað á réttum tíma