Í dag föstudaginn 13. október lauk úrslitum í hinni árlegu Nemakeppni Kornax þar sem sex bakaranemar kepptu sín á milli. Afurðir keppenda voru glæsilegar og bakarastéttinni til mikils sóma. Þeir bakarameistarar sem áttu nema í keppninni geta verið stoltir af fulltrúum sínum.
Kornax stóð fyrir keppninni í samvinnu við bakaradeild Hótel- og matvælaskólans í MK, Landssamband bakarameistara og Klúbb bakarameistara. Þátttaka í keppni af þessu tagi er einstakt tækifæri til að auka við faglega færni og öðlast dýrmæta reynslu sem mun nýtast mjög vel í verkefnum eins og verklegu lokaprófi og sveinsprófi. Vínarbrauð, stór brauð, smábrauð, blautdeig og skrautdeig var meðal þess sem keppt var í.
Eftir jafna og spennandi keppni var það Hekla Guðrún Þrastardóttir frá Hygge sem stóð uppi sem sigurvegari, Guðbjörg Salvör Skarphéðinsdóttir frá Kökulist lenti í öðru sæti og Lovísa Þórey Björgvinsdóttir frá Bæjarbakaríi hafnaði í því þriðja.
Vinningshafi keppninnar hlaut Kitchenaid iðnaðarhrærivél, konfektgjafakörfu frá Nóa Síríus, 25 þúsund króna gjafabréf frá Líflandi, trébretti og leðursvuntu frá Landsambandi bakarameistara, Kornax bikar til eignar og farandbikar frá Klúbbi Bakarameistara sem vinningshafi varðveitir í eitt ár.
Annað sætið hlaut 15 þúsund króna gjafabréf frá Líflandi, Kornax bikar og trébretti og leðursvuntu frá Landsambandi bakarameistara.
Þriðja sætið hlaut 10 þúsund króna gjafabréf frá Líflandi, Kornax bikar og trébretti og leðursvuntu frá Landsambandi bakarameistara.
Við þökkum öllum keppendum kærlega fyrir góða keppni og óskum þeim áframhaldandi góðs gengis á bakarabrautinni.