Flýtilyklar
Neytendapakkningar
KORNAX Hveiti rautt 2 kg
Kornax hveiti (í rauðu umbúðunum) inniheldur u.þ.b. 11% prótein sem er kjörið í alhliða heimilisbakstur. Í gæðaprófunum er ætíð fylgst með styrk glútensins og að ensímvirknin í mjölinu sé hæfileg til að hámarka baksturseiginleika hveitisins.
Kornax hveiti er fyrirtaks hráefni til að baka úr kökur, sætabrauð og matarbrauð. Það má einnig nota til hvers konar matseldar, t.d. í sósur og til að hjúpa mat fyrir steikingu.
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.