Flýtilyklar
Bækur
Knapamerki 1
Í fyrsta hefti Knapamerkjanna er fjallað um almennan grunn í hestahaldi, útbúnaði og gangtegundum.
Knapamerkin eru flestum hestamönnum á Íslandi kunn en þetta stigskipta reiðkennslukerfi telur til fimm stiga bæði á íslensku og ensku.
Markmiðið með Knapamerkjunum er að stuðla að auknum áhuga á reiðmennsku og hestaíþróttum og auðvelda aðgengi, bæta þekkingu, meðferð og notkun á hestinum.
Höfundur bókanna er Helga Thoroddsen en Knapamerkin eru í umsjón og ábyrgð Háskólans á Hólum sem er jafnframt útgefandi námsefnisins. Knapamerkin eru frábær grunnur fyrir alla hestamenn til að byggja á og bæta sig. Bóklega efnið er líklega besta og viðamesta efnið sem til er um íslenska reiðmennsku og eykur
skilning á hestinum og reiðmennsku.
Í fyrsta hefti Knapamerkjanna er fjallað um:
- Atferli, eðli, skap og skynjun hesta og hvernig maðurinn þarf að temja sér að þekkja og umgangast hestinn út frá eðlislægum forsendum hans
- Líkamsbygging hesta
- Hestahald, teymingar, umgengni við hesta og helstu öryggisatriði þar af lútandi
- Gangtegundir íslenska hestsins
- Helstu gerði reiðtygja, notkun og umhirða þeirra
- Mismunandi ásetur og taumhald
- Ásetuæfingar í hringteymingu
- Blaðsíðufjöldi: 87.
- Höfundur: Helga Thoroddsen
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.