Gulrótakaka II
2 bollar Kornax hveiti
2 bollar sykur
2 tsk matarsódi/natron
1 tsk lyftiduft
½ tsk salt
1 tsk kanill
4 egg
1 ½ bolli olía
1 tsk vanilludropar
2 bollar rifnar gulrætur
Blandið saman sjö fyrstu atriðunum og svo er eggjum, olíu og vanilludropum blandað varlega útí. Stór tertuform smurð og sáldruð með Kornax hveiti. Bakað við 200°C í 30 mín.
Krem:
300 gr rjómaostur
150 gr flórsykur
100 gr mjúkt smjör
1 tsk vanilludropar
Þeytið allt saman og smyrjið á milli botnanna og ofan á tertuna. Einum bolla af brytjuðum hnetum stráð yfir kökuna.