Marmarakaka
250 gr Kornax hveiti
250 gr smjörlíki
250 gr sykur
5 stk egg
2 msk kakó
½ tsk lyftiduft
Örlítið af möndludropum
Hrærið smjörlíki og sykur vel saman. Bætið eggjunum saman við einu í einu og hrærið vel á milli. Blandið Kornax hveitinu saman við deigið og skiptið deiginu upp í 3 hluta og blandið kakóinu og möndludropunum saman við einn þeirra. Setjið deigið í lögum í jólakökuform, fyrst hvítt, þá brúnt og að lokum hvítt. Takið oddhvassan hníf og dragið varlega bóstafinn S eftir mótinu endilöngu, við það myndast marmaramunstrið. Bakað við 170°C í umþb. 1 klst.