Hvítlauksbrauð
1 bolli volgt vatn
1 egg
1 tsk salt
2 msk sykur
3 bollar Kornax hveiti
3 msk þurrmjólk
1,5 tsk þurrger
Vatnið sett í skál, gerið sett ofaní og sykri stráð yfir, eftir 5 mínútur er egginu og þurrefninu skellt útí og hnoðað. Ef deigið er blautt, bætið þá meira Kornax hveiti við. Látið hefast í klukkutíma.
Penslið með hvítlauksolíu, stráið fullt af osti yfir og smá hvítlaukssalti (má sleppa).
Bakað á 200° hita í 8-15 mínútur (fer eftir ofni.)
Það má líka nota þetta sem pizzadeig.