Kryddkaka
230 gr Kornax hveiti
100 gr smjörlíki
175 gr sykur
140 gr síróp
2 egg
1 dl sterkt kaffi
1 tsk kanill
1 tsk negull
½ tsk múskat
2 tsk lyftiduft
Hræra saman smjörlíki og sykri þar til áferð verður kremuð. Næst bætt út í eggjum, einu eggi í einu. Skafa vel upp úr botninum og bæta að lokum rest út í og vinna vel saman.
Bakað við ca.150°C í cirka eina klst.
Uppskriftin er passleg í tvö lítil form.