Flýtilyklar
Hnakkar
Top Reiter 9.61
9.61 hnakkurinn var þróaður af hinum sextánfalda heimsmeistara, Jóhanni Skúlasyni.
Topreiter leggur mikið upp úr því að eiga samstarf við bestu knapa íslenskra hesta hverju sinni og nýta reynslu þeirra til að þróa hestvænar gæðavörur.
Nafn hnakksins er dregið af heimsmetseinkunn Jóhanns Skúlasonar og stóðhestsins Hnokka frá Fellskoti í úrslitum töltkeppninnar á Heimsmeistaramótinu í Berlín 2013.
Hjarta hnakksins er virkið. Soft-Swing virkið með fjaður stálramma er þróað með þýskri tækni og verkfræði og er afar sveigjanlegt. Þessi eiginleiki er afar mikilvægur fyrir íslenska hestinn þar sem afturparturinn notar gríðarlega orku og sveigju í framstig á tölti og skeiði.
Hvert smáatriði var þróað með þrotlausum prófunum hvort sem um ræðir lögun sætisins, þyngdarpunktinn eða hárfína staðsetningu sætis og hnépúða. Hnakkdýnurnar gefa afar næmt sæti nærri baki hestsins án þess þó að trufla hestinn eða valda honum óþægindum. Vídd og lögun hnakknefsins leyfir hestinum óskerta hreyfigetu axla og bóga.
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.