Það er alltaf nóg af skemmtilegum verkefnum hér í Líflandi. Á laugardaginn var áburðinum landað við Grundartanga í glampandi sól og rjómablíðu. ☀️☀️
Krafturinn í starfsfólkinu okkar er ótrúlegur og var verkefnið klárað á mettíma.
Áburðarpantanir streyma inn og bílarnir okkar eru komnir á fullt við að dreifa honum um sveitir landsins.
Já sumarið er sannarlega komið í Líflandi. 🍀🌼🌱