Jötunn á Selfossi hefur um nokkurt skeið selt gæludýravörur, hestavörur, fóður og bætiefni frá Líflandi í verslunum þeirra á Selfossi og Lónsbakka, Akureyri.
Síðastliðinn föstudag opnaði Jötunn nýja verslun á Egilsstöðum með pompi og prakt. Verslunin býður fjölbreytt úrval af hverskyns búrekstrarvöru, handverkfærum og leikföngum og ýmsu fleiru. Austfirðingum verður jafnframt auðvelt um vik að nálgast vörur frá Líflandi þar.
Stöðugur straumur fólks var á opnuninni enda boðið upp á kaffi, vöfflur og góð tilboð. Fulltrúi Líflands var á staðnum til skrafs og ráðagerðar fyrir áhugasama viðskiptavini. Jóna Sigríður Guðmundsdóttir og Sindri Fannar Sigurbjörnsson munu sjá um verslunina en þau búa jafnframt kúabúi á Þingmúla í Skriðdal.