Hin árlega Nemakeppni Kornax var haldin með glæsibrag í húsnæði Hótel- og matvælaskólans 5. og 6. mars síðastliðinn. Sjö nemendur frá sjö bakaríum öttu kappi í þessari skemmtilegu keppni sem haldin er af Kornax í samstarfi við Klúbb bakarameistara, Landssamband bakarameistara og Hótel- og matvælaskólann. Verkefni nemanna er að útbúa glæsilegt veisluborð sem samanstendur af ýmsu brauðmeti og skrautstykkjum.
Keppnin nýtur vaxandi vinsælda og er óhætt að segja að vel hafi tekist til með baksturinn í ár. Keppnin var mjög jöfn og kláruðu allir nemendur á réttum tíma. Sigurvegari Nemakeppninnar í ár kemur frá Passion og heitir Birgir Þór Sigurjónsson. Birgir hlaut að launum eigna- og farandbikar auk ferðavinnings. Ennfremur veitir eitt af úrslitasætum keppninnar rétt til þátttöku í Evrópukeppni bakaranema.
Röð efstu sæta:
1. sæti Birgir Þór Sigurjónsson, Passion
2. sæti Íris Björk Óskarsdóttir, Sveinsbakaríi
3. sæti Anna María Guðmundsdóttir, Mosfellsbakarí
4. sæti Gunnlaugur Ingason, Kökulist
Þáttakendur voru:
Íris Björk Óskarsdóttir, Sveinsbakarí
Birgir Þór Sigurjónsson, Passion
Hálfdán Þór Þorsteinsson, Sauðárkróksbakarí
Fannar Sævarsson, Okkar Bakarí
Davíð Þór Vilhjálmsson, Gæðabakstur
Anna María Guðmundsdóttir, Mosfellsbakarí
Gunnlaugur Ingason, Kökulist
Kornax þakkar öllum bakaranemum fyrir skemmtilega og jafna keppni og óskar vinningshöfum til hamingju með árangurinn.