Að þessu sinni voru dagskráratriðin eftirfarandi:
1. Niðurstöður heysýna, samanburður við fyrri ár.
2. Notkun
á heimaræktuðu byggi. Samspil byggs og kjarnfóðurs. Kostir byggnotkunar og hvað ber að varast.
Frá geldstöðu til byrjunar á mjaltaskeiði. Afleiðing af doða, neikvæðu
orkujafnvægi og mismunandi holdstigi hjá mjólkurkúm. Hvernig fara Hollendingar að í þessum efnum?
Fyrirlesarar voru sérfræðingar frá hollenska ráðgjafafyrirtækinu Trouw Nutrition, þeir Gerton Husiman og Henri ter Wijlen. Að venju voru fyrirlestrarnir þýddir á íslensku jafnóðum.
Fundirnir voru að þessu sinni haldnir á Flúðum, Hvolsvelli, Hvanneyri, Blönduósi, Varmahlíð og Akureyri. Fyrirlestrarnir þóttu mjög fróðlegir og urðu umræður um ýmis efnisatriði þeirra á fundunum.
Lífland hefur nú um sex ára skeið tekið heysýni hjá þeim bændum, sem þess óska, og sent til rannsóknarstöðvarinnar BLGG í Hollandi. Niðurstöðurnar liggja gjarnan fyrir sjö til tíu dögum eftir að heysýnin eru send til Hollands. Greining þessara heysýna er mjög nákvæm, m.a. eru flest stein- og snefilefni greind, þar á meðal Selen. Það má sjá við samanburð heysýnanna að t.d. Fosfórmagn hefur lækkað í heyjum á síðustu árum og er nú vel undir lágmarksviðmiðun. Urðu nokkrar umræður um þessar upplýsingar á fundunum og töldu fundarmenn að ástæðan væri væntanlega samspil af minni áburðargjöf og einnig mismunandi skilyrði fyrir upptöku Fosfór úr jarðvegi.