Frábær þátttaka var í smákökusamkeppni Kornax og Gestgjafans sem haldin var um miðjan október síðastliðinn. Alls bárust 160 uppskriftir og sýnishorn af þeim til keppninnar. Dómarar áttu úr vöndu að ráða því kökurnar í ár voru mjög góðar og ljóst að metnaður keppenda var mikill.
Dómarar í keppninni voru Albert Eiríksson, rithöfundur með meiru, Eva Laufey Hermannsdóttir matarbloggari og þáttagerðarmaður hjá stöð 2, Sigríður Björk Bragadóttir ritstjóri á Gestgjafanum, og Auðjón Guðmundsson, vörumerkjastjóri framleiðslu hjá Nóa Síríus. Öll eru þau miklir sælkerar og lögðu með glöðu geði á sig þá erfiðu vinnu að finna bestu kökurnar.
Líkt og fram hefur komið var skilyrði að kökurnar innihéldu bæði hveiti frá Kornax og súkkulaði frá Nóa Síríus. Sigurvegarinn að þessu sinni reyndist vera Guðríður Kristinsdóttir og hlaut hún vegleg verðlaun að launum. Dómarar voru sammála um að kökurnar hennar væru fyllilega þess verðar að hljóta nafngiftina Jólasmákakan 2014. Uppskriftir verða birtar í Kökublaði Gestgjafans sem kemur út 7. nóvember n.k.
1. sæti: Guðríður Kristinsdóttir
2. sæti: Chavdar Ivanov
3. sæti: Anna Björg Helgadóttir
Frumlegasta kakan : Dagur Gnýsson