Lífland hélt fræðslufundi fyrir kúabændur á fimm stöðum á landinu í síðustu viku.
Þetta er fimmta árið í röð sem Lífland heldur fræðslufundi af þessu tagi. Fundirnir eru haldnir í samstarfi við hollenska fyrirtækið Trouw Nutriton.
Dagskrárefni að þessu sinni var „Umbreyting fóðurpróteins í mjólkurprótein – hvaða áhrif hafa gæði gróffóðursins?“. Auk þess var fjallað um niðurstöður heysýna, sem tekin hafa verið í ár af Líflandi og greind af rannsóknarstofunni BLGG í Hollandi.
Fyrirlestrarnir voru fluttir af Gerton Huisman og Henry T. Weijlen sérfræðingum á sviði
fóðurfræði jórturdýra hjá Trouw Nutrition.Fundirnir voru haldnir á Akureyri, Blönduósi, Borgarnesi, Flúðum og
Hvolsvelli.
Að þessu sinni var
kafað nokkuð dýpra í leyndardóma fóðurfræðinnar, heldur en gert hefur verið á fyrri fundum. Var fundarmönnum m.a. sýnt fram
á mikilvægi þess að mælieiningingarnar AAT og PBV væru í jafnvægi við samsetningu gróffóðurs og kjarnfóðurs fyrir
mjólkurkýr. Þá lögðu fyrirlesararnir áherslu á mikilvægi þess að hvert býli láti greina heysýni og
afli sér þannig upplýsingar sem leggja megi til grundvallar frekari ákvörðunum um fóðursamsetningu.