02.11.2012
Landsliðsnefnd LH
boðaði til fundar í gær í höfuðstöðvum Líflands. Á fundinum var kynnt starfsemi Líflands þar sem Lífland er og hefur
verið aðal styrktaraðili landsliðsins síðustu ár og gengur reksturinn vel þar á bæ, og eru það góð tíðindi.
Bjarnleifur Bjarnleifsson formaður landsliðsnefndar fór yfir helstu verk nefndarinnar sem framundan er að heimsmeistaramóti.
frétt
frá hestafrettir.is
Var síðan lykill
landsliðsins kynntur af Sigurði Sæmundssyni og nefndi hann að með tökk Eyjólfs Þorsteinssonar hafi lámör sem dæmi hækkað verulega
þar sem hann hækkaði meðaleinkunn í T2 svo um munar og gerir það það að verkum að erfiðara sé að ná inn í
landsliðið. Hafliði Halldórsson liðstjóri íslenska landsliðsins hélt ræðu og krefst hann að allir þurfi að sýna mikinn
metnað og fórnir til að ná árangri. Gunnar Sturluson varaformaður FEIF skírði mikilvægi þess að við séum virkari í
störfum FEIF og fræddi okkur um hver þróunin verði þar sem að um framtíð íslenska hestsins er í húfi.
sjá
nánar