05.03.2013
Eins og fram hefur komið hér á vefnum styður Lífland við átaksverkefni Þórdísar Erlu í hjálmanotkun sem nú er í
gangi. Átakið hefur fengið nafnið Klárir Knapar og hefur farið mjög vel af stað og fengið mikla umfjöllun.
Í tengslum við þetta verkefni Þórdísar Erlu ætlum við hjá Líflandi
að hafa hjálmadaga í verslunum okkar í marsmánuði. Veittur er 15% afsláttur af öllum hjálmum til 31. mars. Starfsfólk
í verslunum okkar mun einnig aðstoða fólk við stillingar á bæði nýjum og notuðum hjálmum og hvetjum við alla hestamenn til að
líta til okkar.
Síðar í mánuðinum er fyrirhugaður sérstakur hjálmadagur þar sem
Þórdís Erla heimsækir okkur og veitir viðskiptavinum aðstoð við val á hjálmum.