Í febrúar 2013 ákvað Matvælastofnun að innleiða kerfi til að áhættuflokka og meta eftirlitsþörf fyrirtækja sem framleiða matvæli úr dýraríkinu eða fóður.
Frammistöðuflokkarnir eru þrír, A, B og C en öll fyrirtæki byrja í flokki B sem endurspeglar ásættanlegt ástand.
Frammistöðuflokkun fyrirtækja byggir á niðurstöðum úr reglubundnu eftirliti. Þar eru lagðar til grundvallar ákveðnar forsendur fyrir því hvernig starfsstöðvar færast á milli flokka.
Það er okkur ánægja að tilkynna að Lífland hefur nú færst úr frammistöðuflokki B í frammistöðuflokk A.
Sjá nánar um áhættuflokkun Matvælastofnunar hér (http://www.mast.is/library/Bodberar/AhaettuflokkunMatvaeliurdyrarikinuogfodur20130205.pdf)
Fyrirtæki í frammistöðuflokki A:
Matvælastofnun telur að starfsstöðin viðhafi bestu mögulega starfshætti til að framleiða örugg matvæli eða fóður og því má draga úr magni reglubundins eftirlits.
Kröfur:
Eftirlitsaðili hefur skoðað flestar verklagsreglur fyrir matvæla- og fóðurframleiðslu. Verklagsreglurnar eru vel nýttar í starfseminni og eftirlitsaðili hefur staðfest að farið er eftir þeim.
Framleiðandinn greinir hættur í framleiðsluferlinu og verklaginu. HACCP eða verklag byggt á HACCP er til staðar.
Framleiðandi grípur til aðgerða um leið og vandkvæða verður vart.
Eftirlitsaðili hefur greint einstaka lítilsháttar frávik eða gert smávægilegar athugasemdir í eftirliti.
Framleiðandi gerir úrbætur þegar í stað í kjölfar athugasemda. Athugasemdir endurtaka sig ekki.