Fyrirtækið Búaðföng sem hefur rekið verslun og þjónustu fyrir bændur að Stórólfsvelli við Hvolsvöll, hefur gert samkomulag við Lífland ehf. um að Lífland taki við rekstri fyrirtækisins á staðnum.
Lúðvík Bergmann sem hefur átt og rekið Búaðföng hefur ákveðið að hverfa til annara starfa en Berglind B. Gunnarsdóttir og Jón Bertel Jónsson munu starfa áfram hjá fyrirtækinu og sjá um þjónustu við viðskiptavini þess. Lífland ehf. mun halda áfram að efla þá góðu þjónustu sem Búaðföng hefur veitt bændum í heimabyggð.