Bændur í Eyjafirði og nágrenni athugið. Það verður opið hús í verslun Líflands á Lónsbakka, Akureyri föstudaginn 6. mars næstkomandi milli kl. 14 og 18.
Hermann Ingi Gunnarsson bóndi og búfræðikandidat á Klauf í Eyjafjarðarsveit verður á svæðinu og ræðir við gesti og gangandi milli kl. 14 og 17. Söluráðgjafar okkar verða einnig til skrafs og ráðagerða og kynna vöruúrvalið.
Það verður 15% afsláttur af öllum bætiefnum fyrir búfé. Auk þess verður heitt á könnunni hjá Ellert verslunarstjóra og gott með kaffinu.
Vertu velkomin(n)!