VERUM ÖRUGG Í ÚTREIÐUNUM!
Lífland býður upp á 15% afslátt af reiðhjálmum, öryggisístöðum, bakbrynjum, úlpu með innbyggðum brynjum, öryggisvestum, endurskinsvestum, endurskinspískum, endurskins-stallmúlum ásamt ýmiskonar endurskinslausnum fyrir hesta, knapa og hunda. Tilboð gildir frá 23. október - 1. nóvember 2014
Á Öryggisdögum Líflands má einnig finna öryggisbelti, öryggisnet og öryggisgrindur til að tryggja öryggi hunda í bílum!
Lífland vill stuðla að auknu öryggi hestamennskunnar og vitað er að með endurskini sést viðkomandi allt að fimm sinnum fyrr en ella!
Mikilvægt er að auka sýnileika knapa og hesta í skammdeginu. Vert er að taka fram að gott er að nota endurskinið bæði á knapa og hest þar sem þeir geta orðið viðskila.
Lífland býður upp á gott úrval hjálma frá Casco og Uvex
Öryggisístöð varna því að knapi festi fót í ístaði
Endurskinsvesti fyrir börn og fullorðna. Einnig ýmiskonar endurskin fyrir reiðtygi og hest til að auka sýnileika í útreiðum
Stallmúll með endurskini
Bakbrynja sem hægt er að klæðast auðveldlega innanundir peysu eða úlpu
Úlpa með innbyggðum brynjum
Öryggisvesti fyrir börn og fullorðna