Smákökusamkeppni KORNAX
Í gær fór Smákökusamkeppni KORNAX fram hér í Brúarvoginum. Fjöldinn allur af smákökum barst í keppnina sem var ein sú glæsilegasta sem haldin hefur verið.
Dómarar í ár voru Albert Eiríksson, Auðjón Guðmundsson, Sylvía Haukdal og Ásta Björk Styrmisdóttir.
Dómarar áttu í mestu vandræðum með að velja þar sem samkeppnin var óvenju hörð í ár. En það voru þó þrjár smákökur sem stóðu uppi sem sigurvegarar en hér má sjá nöfn vinningshafana.
1.sæti – Hvít jól - Carola Ida Köhler
2. sæti – Appelsínu eftirlæti - Ásdís Hjálmtýsdóttir
3.sæti – Stúfur bakari - Elenora Rós
Vinningshafarnir hlutu glæsileg verðlaun og viljum við óska þeim innilega til hamingju með sigurinn og þökkum öllum sem tóku þátt kærlega fyrir þátttökuna!
Hér má sjá nánari umfjöllun um Smákökusamkeppnina ásamt uppskriftum.