Lífland býður nú 20% afslátt af lífrænu varpfóðri. Fóðrið er lífrænt vottað og kemur frá Þýskalandi. Um er að ræða kurlaða blöndu sem meðal annars inniheldur maís, kalkmjöl, ertur, repjumjöl og hafra ásamt steinefnablöndu fyrir varphænur. Mælt er með að hænurnar hafi frjálsan aðgang að fóðrinu ásamt góðu aðgengi að vatni. Til viðmiðunnar er reiknað með að fóðurþörf fullvaxta hænu sé 100-125 grömm á dag.
Fóðrið er selt í 20 kg pokum og er fáanlegt í öllum verslunum okkar; Lynghálsi, Akureyri og Blönduósi.
Fullt verð er 6.790 kr en tilboðsverð er 5.400 kr.