15% afsláttur af vönduðum þýskum fjárgrindum frá Kerbl í maí.
Frábært, sterkbyggt grindarkerfi sem hentar vel til að útbúa sauðburðaraðstöðu og fjölga stíum þegar mikið liggur við.
Grindurnar eru 92 cm háar og fást í þremur lengdum: 137, 183 og 275 cm.
Einnig fáanlegar einingar með hliði í lengdunum 183 og 275 cm.
Hægt er að tengja hvern grindarenda við þrjár grindur með örfáum handtökum sem gerir það einfalt að stilla upp kerfi með mörgum samtengdum stíum.
Fáanlegir aukahlutir:
- Veggfestingar til að festa grindurnar við tiltæka veggi.
- Læsingarteinn til að læsa grindum við veggfestingu eða tiltæk festiaugu.
- Tengistöng til að fjölga tengipunktum á endum grinda.
Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um grindurnar í næstu verslun eða vefverslun okkar á www.lifland.is
Einnig er hægt að fá upplýsingar hjá söluráðgjöfum í síma 540 1100 eða með því að senda tölvupóst á fodur@lifland.is