Opin hús voru í verslunum líflands í Borgarnesi, Blönduósi og Akureyri í síðustu viku. Þar gafst bændum og búaliði kostur á að gera góð kaup og ráðfæra sig við söluráðgjafa og sérvalinn sérfræðing á hverjum stað. Ekki verður ofsögum sagt að tekið hafi verið vel í þetta framtak og var vel mætt í öllum verslunum. Menn voru mjög áhugasamir um vörur og þá þjónustu sem Lífland býður upp. Komandi vor, sem enn virðist langt í, er mönnum efst í huga enda mikill annatímí framundan í sauðburði og jarðrækt.
Við kunnum þeim Eyjólfi Kristni Örnólfssyni, Ingvari Björnssyni og Hermanni Inga Gunnarssyni bestu þakkir fyrir veitta aðstoð.