Fimmtudaginn 24. nóvember n.k. kl 18:00 -20:00 verður haldinn járningardagur Líflands og Mustad í verslun Líflands á Blönduósi.
Allir áhugamenn um járningar og hófhirðu eru boðnir velkomnir.
Kristján Elvar Gíslason Járningarmeistari menntaður frá dýrlæknaháskólanum í Hannover sýnir heitjárningar, notkun á Vettec viðgerðar og fylliefnum og gefur góð ráð um sjúkrajárningar.
Íslandsmeistarar í járningum, Gunnar Halldórsson íslandsmeistari 2013 & 2014 og Leó Hauksson íslandsmeistari 2015 sýna járningar og svara spurningum.
Veitingar í boði.