Lífland hefur á síðustu misserum sótt í sig veðrið í sölu fatnaðar fyrir keppnisfólk í
hestamennsku.
Bjóðum við nú upp á nokkrar tegundir af hvítum og svörtum
stígvélareiðbuxum, með og án stamrar bótar, frá Mountain Horse, Impact og Sonnenreiter. Sonnenreiter hefur nýlega hafið sölu á
þunnum softshell buxum sem slegið hafa í gegn í Evrópu og bjóðum við upp á þessar buxur í hvítum og svörtum lit sem
stígvélabuxur því að ekki vilja allir klæðast hvítum buxum í keppni.
Keppnisjakka bjóðum við uppá frá Horka og Sonnenreiter. Horka London keppnisjakkarnir eru frábærir í sniðinu, fást í dömu og herrasniði og í tveimur lengdum. Eins eigum við barna keppnisjakka frá Horka á góðu verði. Frá Sonnenreiter bjóðum við svo upp á fallega softshell keppnisjakka í dömu og herrasniðum sem henta vel íslenskum aðstæðum. Keppnisskyrtur og boli eigum við í nokkru úrvali úr ýmsum efnum sem henta bæði að sumri og vetri.
Við bjóðum uppá sérpantanir á leðurreiðstígvélum frá Mountain Horse og Tattini með stuttum afgreiðslutíma. Starfsfólk í verslunum okkar tekur af þér mál og út frá því er hægt að sjá hvaða stígvél henta. Mountain Horse býður upp á mikið úrval af stígvélum í mörgum víddum og hæðum og geta flestir fundið stígvél við sitt hæfi. Einnig eigum við vínylstígvél í barna og fullorðinsstærðum á lager ef menn eru ekki tilbúnir til að leggja út í þann kostað og viðhald sem felst í leðurstígvélum.
vort sem að þú ert keppnisknapi af guðs náð eða vilt bara taka þátt í stöku móti þér og þínum til ánægju þá eigum við fatnað sem hentar tækifærinu. Það gleður augað að sjá snyrtilega klæddan knapa á fallegum hesti í vel útfærðri sýningu.