Nú er Kornax Manitoba hveiti í 2 kg. pakkningum komið í allar helstu matvöruverslanir. Lífland/Kornax hefur í nokkurn tíma framleitt Manitoba hveiti í stórsekkjum fyrir bakarí og nú er komið að almennum neytendum.
Kornax Manitoba hveiti er sterkt hveiti með hátt próteininnihald. Það er tilvalið fyrir súrdeig eða annað deig sem þarf að hefast hægt og lengi. Hentar vel í pizzadeig, focaccia og að sjálfsögðu súrdeigsbrauð.
Súrdeigsbakstur í heimahúsum hefur verið í miklum vexti undanfarin ár og margir farnir að spreyta sig við að laga súr og baka úr honum allskyns brauð. Við súrdeigsbakstur hefur Manitoba hveiti, sem er sterkt hveiti sem á uppruna sinn frá Kanada, spilað stórt hlutverk. Ferlið við súrdeigsbakstur getur virst flókið og krefst fyrirhafnar. Því höfum við tekið saman myndband sem sýnir á einfaldan hátt hvernig ferlið er frá því að súrinn er lagaður þartil fyrsta súrdeigsbrauðið er tekið úr ofninum. Vonandi nýtist það einhverjum við fyrstu skref súrdeigsbaksturs.