30.04.2013
Lífland hefur gefið út nýjan verðlista á tilbúnu fóðri sem tekur gildi 1. maí nk.
Lækkun er á öllum fóðurtegundum frá fyrri verðlista og nemur hún að lágmarki 4%. Lækkunin er mismunandi eftir tegundum en mest
nemur hún 5%. Ástæða verðbreytinga er lækkun á heimsmarkaðsverði hráefna til fóðurgerðar og styrking íslensku
krónunnar. Lífland lækkaði einnig verð 25. mars sl. en fram að því hafði verð haldist óbreytt frá byrjun
desembermánaðar.
Verðlista kjarnfóðurs má sjá hér. Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður
Sæberg Þorsteinsson, sölu- og markaðsstjóri Líflands, í síma 540-1100.