17.10.2012
Leovet hestaumhirðuvörurnar voru að vinna verðlaun í neytendakönnun Cavallo tímaritsins sem að er mest selda hestatímarit í Þýskalandi.
Ritstjórn Cavallo er mjög dugleg að gera neytendakannanir og mikið til þess
unnið að vera þar í efstu sætum þar sem að lesendur tímaritsins velja vinsælustu/bestu vöruna.
Eins og sjá má þá ber Leovet höfuð og herðar yfir
samkeppnisaðilana og er þó samkeppnin á hestaumhirðumarkaðnum í Þýskalandi mjög hörð og mörg góð merki að berjast
um hituna.
Lífland hefur selt Leovet vörurnar í áraraðir og Íslendingar
þekkja merkið af miklu úrvali og góðum gæðum. Sumar Leovet vörur er einnig hægt að nota fyrir okkur mannfólkið svosem Cold Pack
kælikremið á stífa og þreytta vöðva og hefur það td gefið góða raun í baráttunni við vöðvabólgu.
Leovet í Þýskalandi selur Cold Pack kælikremið jöfnum höndum til nota fyrir hross og menn. Nuddarar og sjúkraþjálfarar lofa vöruna
í hástert og nota hana í sinni vinnu.