Meistaradeild Líflands og æskunnar
Meistaradeild Líflands og æskunnar hefst á sunnudaginn kemur með keppni í fjórgangi í Samskipahöllinni í Spretti. Mótið hefst kl. 12:00 og þar munu 40 keppendur í 10 liðum etja kappi í krefjandi keppni.
Að forkeppni lokinni verður gert hlé og síðan eru riðin B-úrslit. Sigurvegari þeirra úrslita öðlast þó ekki keppnisrétt í A-úrslitum, einfaldlega vegna þess að það yrði of mikið álag á hestinn á of stuttum tíma. Hins vegar hlýtur hann dýrmæt stig í keppni um stigahæsta knapann í lok deildarinnar í vor, um leið og allir í B-úrslitum öðlast góða reynslu í því að ríða úrslit.
Rúsínan í pylsuendanum eru svo A-úrslitin, þar sem fimm efstu knapar úr forkeppni fá annað tækifæri til að sýna hvað í þeim býr og þar getur allt gerst hjá toppknöpum á góðum og vel þjálfuðum hestum sínum.
Á vefnum www.mdeild.is fá finna ýmsar upplýsingar um Meistaradeild Líflands og æskunnar í hestaíþróttum, sem og á Facebook síðunni "Meistaradeild Líflands og æskunnar".
Við vonumst til að sjá sem flesta áhorfendur á pöllunum í Samskipahöllinni á sunnudaginn.
Frítt inn og allir velkomnir.