Meistaradeild Líflands og æskunnar 2021
Fyrsta mótið í Meistaradeild Líflands og æskunnar, Hrímnisfjórgangurinn fór fram á sunnudaginn. Sigurvegari var Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir á Þyt frá Stykkishólmi með 6,73 í einkunn.
Í líðakeppninni varð lið þeirra Hörpu Daggar og Kolbrúnar Kötlu stigahæst og hlaut að launum liðagripinn.
Mótið gekk frábærlega vel fyrir sig, knapar voru til mikillar fyrirmyndar og eru augljóslega með mikinn fókus á þjálfun og velferð hestanna sinna.
Næsta mót Meistaradeildar Líflands og æskunnar verður haldið þann 21. febrúar og verður hægt að horfa á það á www.Alendis.is