16.02.2018
Jakob Svavar og Júlía frá Hamarsey sem eru í liði Líflands í Meistaradeildinni héldu efsta sætinu í úrslitum slaktaumatölts og sigruðu örugglega með einkunnina 8,66. Var sýning þeirra sérlega jöfn og örugg og sigldu þau sigrinum þægilega í höfn. Næst á eftir þeim voru þau Viðar Ingólfsson og Pixi frá Mið-Fossum með einkunnina 8,33. Í þriðja sæti var svo hinn nýbakaði faðir, Teitur Árnason á Brúney frá Grafarkoti með einkunnina 7,87
Hér má sjá viðtal við Jakob eftir keppnina í gær.