Hjá Líflandi finnurðu mikið úrval fóðurvöru fyrir smáfuglana. Nú þegar veturinn gengur í garð er um að gera að líta við í verslunum okkar eða í vefverslun og kynna sér okkar góða úrval.
Meðal nýjunga í úrvali smáfuglafóðurs eru netlausar fitukúlur, hampfræ, tólgarfylltir og jólalegir furukönglar og kókoshnetur fylltar með ýmsu góðgæti. Þess utan bjóðum við upp á hið sívinsæla maískurl í ýmsum stærðum en auk þess heilt og afhýtt sólblómafræ, hveitikorn, byggkorn, hirsi, fitukúlur, Luxus fræblöndur og vandaða og endingargóða fóðrara í garðinn.
Ekki má gleyma þurrkuðu mjölormunum sem slegið hafa í gegn og gera garðinn að vinsælasta viðkomustað smáfugla í hverju hverfi!
Meira um úrvalið okkar með því að smella hér.