Laugardaginn 9. apríl sl. stóð Búnaðarfélag Mýramanna fyrir vel heppnaðri landbúnaðarhátíð í Borgarnesi, svonefndri Mýraeldahátíð. Hátíðin var haldin í Faxaborg, reiðhöll Borgnesinga skammt norðan við Borgarnes. Lífland mætti á svæðið með kynningarbás þar sem vörur og þjónusta Líflands var kynnt fyrir gestum og gangandi. Auk Líflands var fjöldi fyrirtækja á svæðinu sem öll eiga það sammerkt að þjónusta landbúnaðinn með einum eða öðrum hætti. Fjölmargir vestlenskir bændur lögðu leið sína í bás Líflands og spjölluðu við okkar fólk.
Flýtilyklar
Mýraeldahátíð
13.04.2016
Leit
Karfa
Skoða körfu
Karfan er tóm