Gunnlaugur Arnar Ingason bakaranemi frá Kökulist sigraði í glæsilegri Nemakeppni KORNAX 2016.
Ellefu bakaranemar tóku þátt í forkeppninni sem fór fram í Hótel- og matvælaskólanum 31. mars – 1. apríl, en fjögur þeirra kepptu til úrslita 8. og 9. apríl. Það voru þau:
Anna Magnea Valdimarsdóttir- Icelandair Hotels- Natura
Fannar Sævarsson- Okkar Bakarí
Gunnlaugur Arnar Ingason – Kökulist
Jófríður Kristjana Gísladóttir- Kruðerí
KORNAX stóð fyrir keppninni í samvinnu við bakaradeild Hótel- og matvælaskólans í MK, Landssamband bakarameistara og Klúbb bakarameistara. Keppendur fengu einstakt tækifæri til að auka við faglega færni og öðlast dýrmæta reynslu sem mun nýtast mjög vel í verklegu lokaprófi og sveinsprófi. Vínarbrauð, stór brauð, smábrauð, blautdeig og skrautdeig var meðal þess sem keppt var í.
Keppnin verður sífellt vinsælli frá ári til árs og var keppnin jöfn og spennandi. Afurðir keppenda voru glæsilegar og bakarastéttinni til mikilla sóma. Þeir bakarameistarar sem áttu nema í keppninni geta verið stoltir af fulltrúum sínum.
Dómarar í keppninni voru fjórir og búa allir yfir mikilli fagþekkingu og reynslu, en þeir voru:
Axel Þorsteinsson – Apotek Restaurant
Birgir Þór Sigurjónsson- Brauðgerð og Co
Henry Þór Reynisson – Reynir bakari
Íris Björk Óskarsdóttir- 17 Sortir
Pina Colada vínarbrauð og jólaglöggs smábrauð.
Gunnlaugur hefur tvisvar sinnum áður tekið þátt í Nemakeppni KORNAX og lagði mikla vinnu í að reyna að sigra keppnina í ár.
„Ég var mjög sáttur með það hvernig mér gekk í keppninni. Mjög flottir keppendur voru að keppa við við hlið mér og maður getur aldrei gengið að sigrinum vísum, en mér leið mjög vel í allri keppninni. Allir keppendur stóðu sig frábærlega og er ég mjög stoltur að standa uppi sem sigurvegari“
Hver keppandi valdi sér þema sem hann vann með í gegnum keppnina. Gunnlaugur valdi að hafa kokteilþema og bjó meðal annars til framandi Pina Colada vínarbrauð og jólaglöggs smábrauð.
„Ég hef alltaf haft áhuga á bakstri og matargerð og mér líkar vinnutími bakara. Ég sé ekki eftir því að hafa valið bakaranámið“ segir sigurvegari Nemakeppni KORNAX 2016.
Gunnlaugur fékk að launum KORNAX bikar til eignar, farandbikar frá Klúbbi bakarameistara sem vinningshafi varðveitir í eitt ár og ferðavinning með WOW air. Allir þeir sem kepptu til úrslita fengu gjafabréf á Hamborgarafabrikkuna.
Öllum keppendum er óskað innilega til hamingju með glæsilegan árangur.