Allium hvítlauksolía er ný vara frá Líflandi sem m.a. vinnur gegn júgurbólgu og og bætir heilsufar búfénaðar. Allium hvítlauksolía hefur einnig fælingarmátt á flugur og gildir það jafnt fyrir kýr og hross, en flugnager getur valdið miklum óþægindum og streitu hjá búfénaði.
Allium hvítlauksolía inniheldur hvítlauksextrakt, sem er ríkt af allisíni, en það er virka efnið í hvítlauknum. Allisín vinnur gegn bakteríum sem geta valdið júgurbólgu. Allium hefur reynst vel hjá kúabændum sem mæla leiðni í mjólk og gefa olíuna um leið og hún hækkar en aukin leiðni getur bent til júgurbólgu á fyrstu stigum.
Sjá meðfylgjandi upplýsingablað um Allium hvítlauksolíu.