Lífland kynnir nýjan og endurbættann sáðvörulista. Markmiðið með listanum er að auka fræðslu og upplýsingagjöf með vörunum sem í boði eru.
Listinn er 8 blaðsíður í A4 broti og er gagnlegum fróðleiksmolum um sáðvöruúrvalið tvinnað saman við almennar upplýsingar um vörurnar, svo sem æskilegt sáðmagn, einingastærðir og verð. Í listanum eru 57 vörutegundir og fylgja stuttar lýsingar á helstu eiginleikum yrkjanna. Eins og fyrr býður Lífland upp á fjölbreytt úrval af gæða sáðvöru, vandaða og trausta ráðgjöf og skilvirka dreifingu.
Sáðvörulistinn er nú sendur á öll bú landsins og ætti hann að hafa borist í vikunni. Nánari upplýsingar um sáðvöruúrval Líflands má fá hjá söluráðgjöfum fyrirtækisins í síma 540-1139 eða í netfangið sadvara@lifland.is.
Kynntu þér nýjan sáðvörulista Líflands 2014.