Lífland óskar ábúendunum, Sigríði Hjaltadóttur og Skúla Þ. Sigurbjartssyni, á Sólbakka í Vestur-Húnavatnssýslu til hamingju með nýja fjósið þeirra sem nýlega var tekið í notkun.
Skúi og Sigríður keyptu allan búnað í fjósið frá Líflandi sem er umboðsaðili fyrir GEA á Íslandi. Innréttingarnar sem allar eru framleiddar í verksmiðju GEA í Leuwarden í Hollandi og mjaltaþjónninn sem er af tegundinni MIOne frá GEA er útbúinn þannig að hægt er að bæta við allt að 5 mjaltaklefum á sama þjóninum. Þá er einnig í fjósinu fjórsköfuþjarkur SROne+ og mjólkurtankur frá GEA. Legumotturnar eru af gerðinni WELA og koma frá Kraiburg í þýslalandi en Lífland er söluaðili þeirra á Íslandi.
Um mikla byltingu í tækjanýjungum er að ræða fyrir Sigríði og Skúla sem og aðstöðuna fyrir kýrnar, framleiðsluna og bætta vinnuaðstöðu.