28.06.2013
Það er opið hús milli 13 og 17 í Bændaþjónustunni á Blönduósi í dag.
Norðlenskir bændur hafa um árabil reitt sig á skjóta og góða þjónustu Bændaþjónustunnar. Það mun ekki breytast
en nú hefur Bændaþjónustan tekið saman höndum við Lífland til að efla og treysta starfsemina. Við hjá Líflandi hlökkum til
að fá að taka þátt í að styðja við blómlegan landbúnað á svæðinu í góðu samstarfi við
reynsluboltana Eymund í Varmahlíð og Hávarð á Blönduósi.
Lífland sýnir ræktarsemi við grunnstoðir mannlífs um allt land. Með góðri ráðgjöf og þjónustu, fjölbreyttu
vöruúrvali og vísindalegum vinnubrögðum sköpum við góðan jarðveg fyrir hverskonar rækt; jarðrækt, búfjárrækt,
nautgriparækt og hestarækt.
Verslanir Líflands eru í dag á Lynghálsi 3 í Reykjavík og á Lónsbakka Akureyri. Fyrirtækið mun halda versluninni að
Efstubraut 1 á Blönduósi óbreyttri og reka áfram undir merkjum Bændaþjónustunnar undir stjórn Hávarðar Sigurjónssonar og
þjóna íbúum svæðisins og öðrum sem þangað leita. Eymundur mun áfram sinna sinni góðu þjónustu í
Skagafirði og njóta stuðnings öflugs ráðgjafateymis á landbúnaðarsviði Líflands.
Við bjóðum norðlenska bændur velkomna í Bændaþjónustuna Blönduósi og Saurbæ.
Komdu við á opnu húsi hjá Bændaþjónustunni á Blönduósi föstudaginn 28. júní milli kl. 13 og 17. Við
verðum með góð tilboð, kynnum vörur og þjónustu Líflands og bjóðum upp á léttar veitingar.