VERUM ÖRUGG Í ÚTREIÐUNUM!
Lífland býður upp á 15% afslátt af reiðhjálmum, bakbrynjum, úlpu með innbyggðum brynjum, öryggisvestum, endurskinsvestum, endurskinspískum, ásamt ýmiskonar endurskinslausnum fyrir hesta, knapa og gæludýr. Tilboðið gildir frá 26.-31. október 2015.
Á Öryggisdögum Líflands má einnig finna öryggisbelti, öryggisnet og öryggisgrindur til að tryggja öryggi hunda í bílum.
Lífland vill stuðla að auknu öryggi hestamennskunnar og vitað er að með endurskini sést viðkomandi allt að fimm sinnum fyrr en ella.
Mikilvægt er að auka sýnileika knapa og hesta í skammdeginu. Vert er að taka fram að gott er að nota endurskinið bæði á knapa og hest þar sem þeir geta orðið viðskila.
Lífland býður upp á gott úrval hjálma frá Casco og Uvex. Það er 15% afsláttur af Casco hjálmum en 15-30% afsláttur af Uvex hjálmum.
Endurskinsvesti fyrir börn og fullorðna. Einnig ýmiskonar endurskin fyrir reiðtygi og hest til að auka sýnileika í útreiðum.
Bakbrynja sem hægt er að klæðast auðveldlega innanundir peysu eða úlpu.
Úlpa með innbyggðum brynjum.
Öryggisvesti fyrir börn og fullorðna.
Gerum dýrin einnig sýnileg
Enduskins taumur og vesti fyrir hunda