15.11.2016
Nú í haust var að venju réttað í Skógarétt í Reykjahverfi í suður-Þingeyjarsýslu. Margt fólk kom saman og þar á meðal voru þau Signý Valdimarsdóttir og Valþór Freyr Þráinsson bændur á Litlu-Reykjum. Öllum að óvörum gerðu þau hlé á réttarstörfum og voru gefin saman af séra Sólveigu Höllu Kristjánsdóttur við mikla hrifningu heimamanna og gesta.
Það var árvökull starfsmaður Líflands sem tók eftir því að brúðguminn klæddist Mountain Horse úlpu í athöfninni en það vill svo til að Lífland er umboðsaðili Mountain Horse á Íslandi.
Starfsmaður okkar sendi til gamans eiganda Mountain Horse í Svíþjóði myndina ásamt umfjölluninni um brúðkaupið. Hann brást svona líka vel við og vildi gleðja þau í tilefni brauðkaupsins. Hann bað okkur að afhenda þeim sitthvort skóparið í brúðargjöf frá fyrirtækinu. Hjónin brugðu sér bæjarferð til Akureyrar þar sem þau sóttu skópörin ásamt blómvendi og freyðivíni.
Lífland óskar Signýju og Valþóri innilega til hamingju með brúðkaupið.