Lífland býður upp á ráðgjöf um fóðrun hrossa í verslun Líflands Efstubraut 1, Blönduósi laugardaginn 16. apríl n.k. frá kl 10:00-11:30.
Nú, þegar mörg hross eru inni á gjöf þarf að huga vel að fóðrun þeirra og mikilvægt er að mæta stein- og bætiefnaþörfum þeirra.
Íslenskan gróður getur skort ýmis mikilvæg stein- og snefilefni, t.d. selen og natríum og þarft að huga að réttri fóðrun.
Einungis eru rúmir tveir mánuðir í Landsmót þar sem vafalítið á eftir að reyna meira á hesta í þjálfun og reynir þar mikið á fóðrunarþáttinn.
Dr. Susanne Braun dýralæknir mun miðla af víðtækri þekkingu sinni í máli og myndum auk þess að vera til skrafs og ráðagerða að loknu erindi sínu.
Dr. Susanne Braun er íslenskum hestamönnum að góðu kunn. Susanne hefur starfað sem dýralæknir á Íslandi í áratug. Hún er sérfræðingur í hestasjúkdómum og auk þess IVCA kírópraktor og reiðkennari ásamt því að vera alþjóðlegur íþróttadómari.
Veittur verður 15% afsláttur af hestafóðri frá Líflandi og Pavo, auk tilboða á völdum bætiefnavörum fyrir hesta. Boðið verður upp á veitingar.