Lífland efnir til fræðslufunda fyrir bændur á sex stöðum á landinu dagana
29. janúar til 1. febrúar.
Aðalefni fundanna að þessu sinni verður hvernig standa skuli að fóðrun nauta, sem alin eru til kjötframleiðslu.
Þá verður kynnt hvernig staðið er að nautaeldi í Hollandi og í fleiri löndum Evrópu.
Tveir sérfræðingar frá ráðgjafafyrirtækinu Trouw Nutrition munu halda erindin, sem verða túlkuð á íslensku.
Fundirnir verða haldnir á eftiröldum stöðum:
Mánudaginn 29. janúar kl. 20.30. Verslun Líflands á Hvolsvelli.
Þriðjudaginn 30. janúar kl. 11.30. Icelandair hótel Flúðum.
Þriðjudaginn 30. janúar kl. 20.30. Verslun Líflands í Borgarnesi.
Miðvikudaginn 31. janúar kl. 20.30. Verslun Líflands Blönduósi.
Fimmtudaginn 1. febrúar kl. 11.30. Hótel Varmahlíð.
Fimmtudaginn 1. febrúar kl. 20.30. Verslun Líflands Akureyri.
Að loknum framsöguerindum verður boðið upp á léttar veitingar.