Stein- og snefilefnaskortur er algengt vandamál í íslenskum landbúnaði. Því er mikilvægt fyrir búfjáreigendur að hyggja vel að bætiefnagjöf sem samræmist best því gróf- og kjarnfóðri sem gefið er hverju sinni. Lífland býður upp á fjölbreytt úrval bætiefna og fóðurtengdra hjálparefna fyrir búfénað, meðal annars við kálfaskitu, selenskorti, doða, súrdoða og öðrum þekktum kvillum.
Lífland hefur síðustu ár staðið fyrir fræðslufundum fyrir bændur. Höfum við fengið til liðs við okkur sérfræðinga frá okkar helstu fóðurráðgjöfum hjá Trouw Nutrition í Hollandi. Hafa þeir staðið að öflugu rannsóknar- og þróunarstarfi í fóðurfræði nautgripa um allan heim og hefur fyrirtækið verið einn helsti ráðgjafi og bakhjarl Líflands er varðar fóðrun á Íslandi í meira en áratug.
Að þessu sinni munu fræðslufundirnir vera með áherslu á mikilvægi stein-, snefil- og bætiefna fyrir mjólkurkýr, kálfa og naut. Þá verður einnig, í stuttu máli, farið yfir það vöruúrval sem er í boði í dag, notkun og sérstöðu þeirra. Gestir Þorraþræls verða leystir út með veglegum bætiefnapakka að lokinni fræðslu auk þess sem boðið verður upp á léttar veitingar á fræðslufundinum.
Fundirnir verða haldnir á eftirfarandi stöðum 28. – 31. janúar 2019
Mánudagur 28. janúar
-
- 20:30 Verslun Líflands á Hvolsvelli
Þriðjudagur 29. janúar
-
- 11:30 Hótel Flúðum
- 20:30 Verslun Líflands í Borgarnesi
Miðvikudagur 30. janúar
-
- 20:30 Verslun Líflands á Blönduósi
Fimmtudagur 31. janúar
-
- 11:30 Hótel Varmahlíð
- 20:30 Verslun Líflands á Akureyri