Fyrsti Fræðslufundur Líflands var haldinn á Hvolsvelli í gærkvöldi og var almenn ánægja með þau erindi sem þar voru haldin.
Þeir Gerton Huisman og Koen Luijben frá Trouw Nutrition héldu tvö erindi um nautaeldi.
Annars vegar um nautaeldi á Íslandi og hvernig hægt er að ná hámarksárangri hér og hins vegar um stöðu nautaeldis í Hollandi og víðar á meginlandinu.
Um 40 gestir mættu á fundinn og þáðu veitingar að honum loknum.
Næsti fræðslufundur verður haldinn í Verslun Líflands Borgarnesi kl. 20:30 í kvöld.
Allir velkomnir.