Í síðustu viku flutti Dr. Susanne Braun fagdýralæknir fróðlegt veffræðsluerindi undir yfirskriftinni „Fóðrun unghrossa og tamningatrippa á húsi“. Þar fór Susanne yfir hvar hægt er að gera betur í aðbúnaði og fóðrun yngri hesta, hvaða vandamál og kvillar geta komið upp og skoðaði hvaða fóður- og bætiefnavörur geta gagnast á þessu skeiði.
Erindið er núna orðið aðgengilegt og við hvetjum þá sem misstu af því til að líta á það hér fyrir neðan.
Þetta veffræðsluerindi er liður í röð þriggja erinda sem haldin verða á næstu mánuðum og næstu tvö erindin verða eftirfarandi:
- Eldri hestar og vandamál í hestum - 23. febrúar
- Frá gangmáli að tamningu - 12. apríl