04.07.2013
Föstudaginn 28.6 síðastliðinn var haldin kynning á samstarfi Líflands og Bændaþjónustunnar á
Blönduósi. Lífland tók yfir rekstur Bændaþjónustunnar í byrjun mánaðarins og verður starfsemin rekin áfram með sama
starfsfólki og svipuðum hætti og áður.
Sem fyrr segir var til boðað til opins húss hjá Hávarði verslunarstjóra á
Blönduósi og var vel mætt. Boðið var upp á léttar veitingar og tilboð á vörum. Verslunin hefur tekið þó nokkrum breytingum og
má búast við því að vöruval aukist enn á næstu vikum.
Vörustjórar frá Líflandi mættu á svæðið og fóru yfir vöruframboð Líflands og ræddu við bændur og
aðra gesti verslunarinnar. Ekki var annað að heyra á gestum en að þeim lítist vel á breytingar á versluninni og nýja samstarfsaðila
þeirra Hávarðar og Eymundar sem rekið hafa Bændaþjónustuna um árabil.
Bændaþjónustan er opin virka daga frá kl 12 - 17 og er staðsett á Efstubraut 1 Blönduósi.
Eymundur sinnir sölu og ráðgjöf til viðskiptavina á svæðinu í góðu samstarfi við verslanir á Blönduósi og
Akureyri og söluráðgjafa Líflands á Reykjavíkursvæðinu. Hægt er að ná í Eymund í síma 892-8012.