Lífland hélt vel heppnaða afmælishátíð síðastliðinn laugardag. Þó að veður hefði mátt vera betra í Borgarnesi, Blönduósi og á Akureyri hafði það lítil áhrif á mætingu. Margt var um manninn á öllum hátíðarstöðum og var góða skapið með í för. Bæði börn og fullorðnir skemmtu sér vel, pylsur voru grillaðar í stórum stíl og vel fór af kökunum. Einnig voru frábærir afmælisafslættir í gangi sem margir nýttu sér.
Hér má sjá myndir frá afmælishátíðinni: