Þann 1. apríl hækkar verð á kjarnfóðurtegundum sem Lífland framleiðir um 0,7-3,4%, breytilegt eftir tegundum.
Skýringar verðhækkana nú liggja í mikilli verðhækkun sojamjöls en einnig hafa hveiti, maís og önnur fóðurefni hækkað sem leitt hefur til þessarar niðurstöðu.
Uppfærða verðskrá er að finna hér.
Nánari upplýsingar veitir Jóhannes Baldvin Jónsson vörustjóri í s. 540-1143 eða í johannes@lifland.is.